Sölu- og þjónustuskilmálar fyrir loft í vatn varmadælur
Almennir skilmálar við kaup á Waterstage loft í vatn varmadælu:
Innifalið í verði varmadælunnar er uppsetning og tenging raf- og kælimiðilslagna milli inni- og útihluta dælunnar, tenging við rafkerfi byggingarinnar og gangsetning.
Þetta miðast við að aðstæður séu þannig að innihluti varmadælu komi í kyndiklefa eða tæknirými byggingar og heildarlengd kælimiðilslagna milli inni og útihluta ekki lengri en 5m. Gert er ráð fyrir aðgengi að dreifiskáp rafmagns eða kvísl fyrir kyndingu í tæknirými með nauðsynlegum varnarbúnaði. Ef ekki er um slíkt að ræða sér kaupandi um lögn kvíslar frá dreifiskáp að innihluta varmadælunnar og greinakassa með nauðsynlegum sjálfvörum.
Afhendingarstaður við kaup er Reykjavík en almennt gildir um uppsetningar innan 50 km fjarlægðar frá afhendingarstað að varmadælan er flutt á uppsetningarstað kaupanda að kostnaðarlausu en kaupandi sér um fæði og uppihald á uppsetningartíma. Ef um meiri fjarlægðir er að ræða er kostnaður við fluttninga og ferðir vegna uppsetningar samkvæmt gildandi taxta eða samkomulagsatriði milli seljanda og kaupanda sem tiltekið er í tilboðum.
Kaupandi gerir allar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að koma fyrir búnaði og vegna tenginga við pípulagnakerfi byggingar, útvegar og tryggir samræmingu á vinnu pípulagnameistara og uppsetningaraðila svo ekki verði tafir á framkvæmdinni eða annar óþarfa kostnaður.
Sækja sölu- og þjónustuskilmála fyrir loft í vatn varmadælur á pdf:
Skilmálar fyrir staðlaða uppsetningu loft í vatn varmadælu frá Fujitsu
Innifalið í uppsetningu er:
- Allt að 10 tímar í vinnu á verkstað
- Allt að 5m lengd kælimiðils- og raflagna utanáliggjandi á vegg
- Uppsetning innihluta í kyndiklefa, verkkaupi gerir nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja nægilegt gólf og /eða veggpláss fyrir búnað
- Veggfesting og gúmmípúðar fyrir útihluta, hámarks hæð undir festingu 1,2m yfir sléttum fleti
- Hámarkslengd rafstrengja að varmadælu frá töflu eða næsta tengistað er 5m
- Eitt gat í útvegg Ø 55-60mm heildar þykkt að 300mm
- Gangsetning og prófun varmadælu
- Stutt kennsla á notkun búnaðar og útlistun á reglubundnu viðhaldi
- Gróf tiltekt á verkstað að verki loknu (kaupandi sér um förgun umbúða)
- Akstur og ferðatími 50km. (100km heild fram og til baka frá afgreiðslustað)
Biðtími eftir afgreiðslu getur verið 2-5 vikur og jafnvel lengri eftir aðstæðum og veðurfari
Eins árs ábyrgð er á vinnu og efni vegna uppsetningar.
Varmadælunum fylgja vinklar til festingar á vegg, auka vinna og kostnaður við uppsetningar á aðrar undirstöður fellur á kaupanda.
Uppsetningaraðili leitast við að ráðleggja kaupanda um staðsetningu inni- og útihluta varmadælunnar endanleg staðsetning er þó alltaf á ábyrgð kaupanda.
Þessir skilmálar gilda ef ekki er um annað samið milli aðila.